Bordeaux er hafnarborg við Garonne-fljót í Gironde-héraði í suðvesturhluta Frakklands. Sem miðpunktur mikils vínræktar- og vínframleiðslusvæðis er Bordeaux enn áberandi stórborg og hefur mikil áhrif á alþjóðlegan víniðnað, þótt engin vínframleiðsla fari fram innan borgarmarkanna. Þar er haldin helsta vínsýning heims, Vinexpo, og vínframleiðsla á stórborgarsvæðinu veltir 14.5 milljörðum evra á ári. Borgin hefur verið viðurkennd sem áhrifamesta vínframleiðsluborg heims af WRCA.









